Rúnu Rauðka þróast vel 6. maí 2011
Frigg frá Tjarnarkoti 4. maí 2011
Rúnu Rauðka í þjálfun 11. mars 2011
Frigg frá Tjarnarkoti 11. mars 2011
Rúnu Rauðka 31. desember 2010

Við fórum að kíkja á Rúnu Rauðku sem er nú í tamningu hjá Þresti Gestssyni í Víðidalnum. Við erum ánægð með þróunina á henni og finnst hún koma vel út hjá Þresti, vonumst til að geta sýnt hana í hæfileikadóm í sumar. Rúnu Rauðka hefur nú þegar fengið mjög góðan byggingardóm en ekkert varð af frekari þjálfun þá vegna slysafyls sem uppgötvaðist í miðju tamningaferli.
Frigg frá Tjarnarkoti 4. maí 2011
Hér má sjá myndir af Frigg frá Tjarnarkoti sem hefur verið í tamningu í vetur en hún er undan Tóni frá Ólafsbergi. Tryppin undan honum eru næm með frábært ganglag og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.
Rúnu Rauðka í þjálfun 11. mars 2011

Í sömu ferð var litið við hjá Örnu í Faxahestum þar sem Rúnu-Rauðka er í sundi og þjálfun, hér er um að ræða fallega byggða hryssu sem á mikið inni og verður gaman að fylgjast með henni.
Frigg frá Tjarnarkoti 11. mars 2011

Frigg frá Tjarnarkoti var að koma úr 2 mánaða tamningu frá Agnari í Staðarhúsum og lofar bara góðu. Siggi bróðir og Óli Pétur voru með í för, þeir tóku hana út og leist bara vel á.
Rúnu Rauðka 31. desember 2010

Rúnu Rauðka er komin í þjálfun fyrir sunnan hjá honum Guðmundi Inga í Fjárborgum.
Hún var í tamningu í fyrra og lofaði mjög góðu og fór í byggingardóm og fékk 8,23 en
reyndist fylfull. Ættlunin er að sýna hana í vor og fá á hana fullnaðardóm.
Hún var í tamningu í fyrra og lofaði mjög góðu og fór í byggingardóm og fékk 8,23 en
reyndist fylfull. Ættlunin er að sýna hana í vor og fá á hana fullnaðardóm.
| Eldri fréttir » |
Tjarnarkot.is - tjarnarkot@tjarnarkot.is
